Staða húsnæðisins um miðjan júlí

Nú eru framkvæmdir við húsnæðið komnar á lokastig og unnið er að frágangi innandyra og utan. Nokkur seinkun hefur orðið á framkvæmdunum miðað við það sem áætlanir gerðu ráð fyrir og stafar það af ýmsum orsökum. Nú er gert ráð fyrir að neðri hæð hússins verði nokkurn veginn klár 17. júlí en ljóst að unnið verður að frágangi á efri hæðinni líklega fram að skólasetningu.  Allt hefst þetta þó að lokum og öruggt að skólastarfið getur hafist af fullum krafti á tilsettum tíma..  Smellið hér til að sjá myndir af stöðu mála í húsnæðinu.