Starfsdagur í grunn- og leikskólum Akureyrarbæjar mánudaginn 16. mars
Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum í dag hefur heilbrigðisráðherra ákveðið að virkja heimildir sóttvarnalaga sem fela m.a. í sér að skólahald verður takmarkað tímabundið. Nánari útfærslur verða unnar samkvæmt tilmælum stjórnvalda.
Í ljósi þessa hefur verið ákveðið að mánudaginn 16. mars verði starfsdagur í leik- og grunnskólum Akureyrarbæjar svo stjórnendur og starfsfólk geti skipulagt skólastarfið sem best á þessu tímabili sem takmörkunin nær til.
Foreldrar leik- og grunnskólabarna eru beðnir að fylgjast vel með upplýsingum sem birtast munu um helgina og á mánudaginn m.a. á heimasíðu Akureyrarbæjar og heimasíðum grunn- og leikskóla.
Hólmatún 2 | 600 Akureyri Sími: 460 4100 Frístund: 460 4111 Netfang: naustaskoli@akureyri.is
|
|
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um veikindi eða óskir um leyfi nemenda: 460 4100 / naustaskoli@akureyri.is