17.05.2014
Sumarnámskeiðið
Sumarlestur – Akureyri bærinn minn er haldið í júní ár hvert og verður svo einnig á komandi sumri og verður það 14.
skiptið. Að námskeiðinu standa Amtsbókasafnið og Minjasafnið á Akureyri í samstarfi við aðrar menningarstofnanir bæjarins. Í
ár standa námskeiðin í fjóra daga í vikur frá kl. 9-12. Námskeiðin eru 10.-13.júní, 16-20.júní
(frí 17.júní) og 23.-26.júní
Sumarlestur er lestrarhvetjandi námskeið fyrir börn í 3. og 4. bekk, með áherslu á menningu og sögu Akureyrar. Rauði þráður
námskeiðsins er lestur. Þá er bæði átt við bóklestur en einnig læsi á umhverfið. Lesið verður í minjar og
sögu, list og náttúru. Þannig er lesið í lífið og tilveruna alla námskeiðsdagana og jafnvel lengur því vonandi fylgir
börnunum áfram sú meðvitund sem vaknar varðandi umhverfi þeirra og sögu. Undir leiðsögn safnfræðslufulltrúa kynnast börnin
starfsemi Amtsbókasafnsins, Minjasafnsins og annarra menningarstofnanna. Börnin kynnast starfseminni sem þarna fer fram í samhengi við markmið
námskeiðisins. Námskeiðin verða kynnt í maí í grunnskólum og kynningarefni vegna þeirra dreift. Skráning hefst
26.maí, Sé frekari upplýsinga óskað má hafa samband við safnfræðslufulltrúa safnannaRagna Gestsdóttir
á Minjasafninu á Akureyri á netfanginu ragna@minjasafnid.is
Herdís Anna Friðfinnsdóttir á Amtsbókasafninu á netfanginu herdisf@akureyri.is