Sumarleyfi

Skrifstofa Naustaskóla verður lokuð frá 20. júní til 2. ágúst í sumar. Ef á þarf að halda er hægt að hafa samband við skólastjóra með netfanginu agust@akureyri.is eða í síma 847-8812.  Skólasetning verður 22. ágúst.  Foreldrar nýnema munu fá tölvupóst um miðjan ágúst með boðun í viðtal á skólasetningardaginn. Gert er ráð fyrir að skólinn annist innkaup námsgagna fyrir nemendur nema hvað varðar ritföng fyrir nemendur í 4.-9. bekk.  Upplýsingar varðandi þetta verða birtar hér á heimasíðunni í byrjun ágúst.  Hafið það gott í sumar og við hlökkum til að sjá ykkur í haust!