Nú hefur verið opnað fyrir tilnefningar til Foreldraverðlauna 2016 en síðasti skiladagur er 27. apríl.
Hægt er að senda inn tilnefningar hér: http://www.heimiliogskoli.is/foreldrastarf/foreldraverdlaun/tilnefning-til-foreldraverdlauna-heimilis-og-skola/
Einnig er hægt að tilnefna sérstaklega til dugnaðarforkaverðlauna: http://www.heimiliogskoli.is/foreldrastarf/foreldraverdlaun/tilnefning-dugnadarforkur/
Markmið Foreldraverðlauna Heimilis og skóla er að vekja athygli á því gróskumikla starfi sem fer fram innan leik-, grunn og framhaldsskóla, og þeim mörgu verkefnum sem stuðla að öflugu og jákvæðu samstarfi heimila, skóla og samfélagsins. Foreldraverðlaun eru veitt til eins verkefnis/viðfangsefnis. Heimili og skóli – landssamtök foreldra standa fyrir Foreldraverðlaunum en samtökin sjálf, stjórn eða starfsfólk tilnefna ekki verkefni, heldur vinnur dómnefnd úr innsendum tilnefningum. Niðurstöður dómnefndar byggjast á greinargerðum og rökstuðningi þeirra aðila sem tilnefndu.
Hólmatún 2 | 600 Akureyri Sími: 460 4100 Frístund: 460 4111 Netfang: naustaskoli@akureyri.is
|
|
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um veikindi eða óskir um leyfi nemenda: 460 4100 / naustaskoli@akureyri.is