Tímabundin ókeypis tannlæknaþjónusta fyrir börn...

Vakin er athygli á tímabundnu verkefni í sumar um ókeypis, nauðsynlegar tannlækningar barna tekjulágra foreldra/forráðamanna.   Frá 1. maí til og með 26. ágúst verður boðið upp á ókeypis, nauðsynlegar tannlækningar fyrir börn tekjulágra foreldra/forráðamanna. Tannlæknar á tannlæknadeild Háskóla Íslands meta hvað teljast nauðsynlegar tannlækningar og þar er þjónustan veitt.   Tekið verður við umsóknum frá 28. apríl til og með 1. júní 2011.  Nánari upplýsingar um verkefnið má nálgast hér...