16.09.2009
Merkingar á gangbrautum í kringum
skólann hafa tafist vegna bilunar á tækjabúnaði en þær verða væntanlega málaðar nú fyrir helgina. Unnið er að
því að setja upp gangbrautamerki í nágrenni skólans og auknar hraðatakmörkunarmerkingar verða settar upp á næstu vikum. Varðandi
aðrar framkvæmdir í nágrenni skólans má nefna að í undirbúningi er malbikun á stíg sem liggur frá Skálatúni
í átt að skólanum og verið er að skoða að malbika gangstétt sunnan við Lækjartún frá Mýrartúni að
Kjarnagötu og vestan við fyrirhuguð bílastæði skólans frá Lækjartúni að innkeyrslu við skólann.