03.02.2014
Þriðjudaginn 11. febrúar 2014er
áætlað að nemendur Naustaskóla fari í Hlíðarfjall til að njóta samveru og útiveru ef veður leyfir. (Ef ekki viðrar
verður gerð önnur tilraun þann 12. febrúar) Þeim nemendum sem ekki geta farið í fjallið af einhverjum ástæðum verður
boðið upp á afþreyingu í skólanum.
Nemendur mæta eins og venjulega kl. 8:10
Farið verður frá skólanum sem hér segir:
4.-10. bekkur kl. 08:20 en 1.-3. bekkur kl. 09:00
Lagt verður af stað úr Hlíðarfjalli sem hér segir:
1. – 3. bekkur kl. 11:20 en 4.-10. bekkur kl. 12:00
Þegar komið er í skóla aftur verður matur samkvæmt venju en eftir það fara nemendur heim eða í Frístund, nema að kennsla verður
í valgreinum í 8.-10. bekk.
Nemendur í 4.-10. bekk geta fengið lánaðan búnað endurgjaldslaust en nemendur í 1.-3. bekk geta því miður ekki fengið
lánaðan búnað en er velkomið að hafa með sinn eigin búnað eða snjóþotur og sleða.
Útbúnaður:
Skíði, bretti, snjóþotur, þoturassar, svartir plastpokar og sleðar eru leyfðir til fararinnar.
Hjálmar eru nauðsynlegir! (Bent er á að hægt er að nota reiðhjólahjálma)
Mikilvægt er að nemendur séu vel klæddir og í vel merktum fatnaði.
Ekki gleyma snjóbuxunum, vettlingunum eða húfunni.
Nesti: nemendur komi sjálfir með hollt og gott nesti. Sjoppa er ekki opin.
Nemendur fá afhent lyftukort þegar þeir mæta á svæðið. Ef nemendur óska eftir að verða eftir í fjallinu þegar
dagskrá lýkur þurfa foreldrar að hafa óskað eftir því við umsjónarkennara eða ritara skólans. Lyftukortin gilda allan daginn en
skila þarf lánsbúnaði eða semja um leigu á honum. Ekki er hægt að bjóða upp á skíðakennslu en við munum
aðstoða nemendur eins og kostur er.
Útivistardagurinn er með öllu gjaldfrjáls fyrir nemendur.
Starfsfólk Naustaskóla