Viðtalstímar í janúar

Dagana 2. og 3. janúar eru starfs- og viðtalsdagar hjá okkur.  Þá eru kennarar við undirbúning fyrir hádegi en eftir hádegi eru viðtöl við nemendur og foreldra.   Ætlast er til að allir nemendur mæti til viðtals við umsjónarkennara þessa daga.  Viðtalstíma er að finna hér  en ef tímasetningar henta alls ekki eru foreldrar beðnir um að snúa sér til ritara skólans (Guðrún s. 4604100 / gudrunhuld@akmennt.is) og við reynum að finna nýjan tíma.  Kennsla samkvæmt stundaskrá hefst svo föstudaginn 4. janúar.