22.04.2013
Skólanefnd Akureyrarbæjar veitir árlega viðurkenningar þeim
einstaklingum og/eða stofnunum sem skarað hafa fram úr í skólastarfi á skólaárinu. Markmiðið er að vekja sérstaka athygli á
því sem vel er gert og hvetja þá sem fyrir valinu verða til þess að halda áfram því góða starfi sem þeir eru að vinna
og jafnvel gera enn betur. Viðurkenning er einnig staðfesting á að viðkomandi skóli/kennari/nemandi er fyrirmynd annarra á því sviði sem
viðurkenning nær til. Nú er komið að því að leita eftir tilnefningum. Allir sem áhuga hafa geta tilnefnt. Frestur til að skila inn tilnefningum er
er til 6.maí 2013. Hægt er að smella hér til að fá nánari
upplýsingar og/eða skila inn tilnefningum.