Mánudaginn 21. maí ætlum við að
bjóða tilvonandi nemendum 1. bekkjar ásamt forráðamönnum þeirra í heimsókn til að hitta verðandi kennara og kynna sér
skólann. Öllum forráðamönnum innritaðra barna í árgangi 2006 ætti nú að hafa borist svohljóðandi
tölvupóstur:
Sælt veri fólkið
Þessi póstur er sendur til foreldra og forráðamanna nemenda sem hafa verið innritaðir í 1. bekk Naustaskóla haustið 2012.
Í fyrsta lagi langar mig, fyrir hönd skólans, að bjóða ykkur velkomin til samstarfs við okkur, við hlökkum til að taka á móti
börnum ykkar í haust.
Í öðru lagi langar okkur til að bjóða ykkur, foreldrum og væntanlegum nemendum, á stutta kynningu í skólanum mánudaginn 21. maí
nk. kl. 17:00.
Þar gefst nemendum og foreldrum tækifæri til að skoða skólann og hitta væntanlega umsjónarkennara, en foreldrar fá auk þess kynningu
á skólanum og tækifæri til að spyrja um það sem þeim liggur á hjarta.
Skólastarfið hjá 1. bekk í haust mun svo hefjast á viðtölum foreldra og nemenda við umsjónarkennara. Um miðjan ágúst
mun ykkur því berast boðun í viðtal þann 22. ágúst en kennsla hefst svo fimmtudaginn 23. ágúst. Í upphafi
skólaárs verður einnig um að ræða frekari fræðslu um skólann og skólastarfið en það verður nánar auglýst
síðar.
Við munum minna á kynninguna með tölvupósti þegar nær dregur en endilega takið þennan tíma frá svo sem flestir geti komið - 21.
maí kl. 17:00 á neðri hæð Naustaskóla.
Við minnum á heimasíðu skólans,
http://www.naustaskoli.is en þar má finna nokkuð af
upplýsingum um skólann og fréttir af skólastarfinu.
Með bestu kveðjum og von um gott samstarf á komandi árum,
Ágúst Jakobsson
skólastjóri