Fréttir

6. bekkur á sjó

Nemendur í 6. bekk fóru í siglingu með Húna II þann 1. september. Í ferðinni  kynntust nemendur sjávarútveginum og fræddust um lífríkið í sjó ásamt sögufræðslu um bátinn og ströndina. Rennt var fyrir fisk og gert að honum með tilheyrandi fróðleik. Að lokum var aflinn grillaður og smakkaður  um borð. Þetta var frábær ferð, enda lék veðrið við krakkana, og það voru glaðir og stoltir nemendur sem komu heim með dálítinn afla í nesti.  Smellið hér til að sjá myndir úr sjóferðinni..
Lesa meira

Septemberfréttabréfið

Fréttabréf septembermánaðar er komið út.  Smellið hér til að opna fréttabréfið..
Lesa meira

Starfsáætlun 2011-2012

Starfsáætlun Naustaskóla fyrir starfsárið 2011-2012 er komin út.  Starfsáætlun er gefin út árlega og er henni ætlað að gefa upplýsingar um skólann, áherslur og markmið með skólastarfinu, skipulag og helstu verkefni skólaársins, fyrirkomulag kennslu, venjur og siði í skólanum o.fl. Smellið hér til að opna starfsáætlunina...
Lesa meira

Nýtt nemendaráð

Í dag var kosið nýtt nemendaráð fyrir skólann. Eftir stutta og snarpa kosningabaráttu var haldinn kjörfundur þar sem nokkrir frambjóðendur kynntu sig og svo var gengið til kosninga.  Niðurstaðan varð sú að eftirtaldir skipa nemendaráð Naustaskóla veturinn 2011-2012:  Pétur Már Guðmundsson 9. bekk - formaður Hrannar Þór Rósarsson 9. bekk Brynjar Helgason 8. bekk Ugla Snorradóttir 7. bekk Freyr Jónsson 6. bekk Guðný Birta Pálsdóttir 5. bekk Íris Orradóttir 4. bekk
Lesa meira

Stundatöflur

Stundatöflurnar eru komnar á heimasíðuna og má nálgast þær hér...Svo er bara að byrja að læra af fullum krafti!!
Lesa meira

Fréttabréf

Fyrsta fréttabréf skólaársins er komið út og má nálgast það hér.
Lesa meira

Skólasetning

Skólasetning í Naustaskóla verður mánudaginn 22. ágúst.  Nemendur mæti á eftirfarandi tímum: kl. 10:00 2.-3. bekkurkl. 10:30 4.-5. bekkur kl. 11:00 6.-7. bekkur kl. 11:30 8.-9. bekkurNemendur í 1. bekk og forráðamenn verða boðaðir í viðtöl á skólasetningardaginn, tölvupóstur með viðtalstímum verður sendur út þriðjudaginn 16. ágúst.   Á skólasetningunni hitta nemendur umsjónarkennara, fá stundaskrá og fræðast um starfið í vetur. Foreldrar eru velkomnir og við mælumst sérstaklega til þess að foreldrar nýrra nemenda í skólanum fylgi sínum börnum. Kennsla hefst skv. stundaskrá þriðjudaginn 23. ágúst. Gleðilegt nýtt skólaár!
Lesa meira

Innkaup námsgagna

Skólinn annast innkaup á námsgögnum fyrir nemendur og innheimtir gjald fyrir það, en foreldrar þurfa að versla lítillega fyrir nemendur í 4.-9. bekk. Ef einhver óskar eftir að annast öll innkaup sjálfur þarf viðkomandi að hafa samband við skólann og fá ítarlegri lista.  Námsgagnagjald haustið 2011 er kr. 3.600 fyrir 1.-3. bekk en kr. 4.000 fyrir 4.-9. bekk.  Foreldrar eru beðnir um að greiða gjaldið inn á reikning 0159-15-200070, kt. 070372-5099, fyrir 22. ágúst, vinsamlegast setjið nafn barns sem skýringu/tilvísun.   Hér má finna innkaupalista fyrir 4.-9. bekk:   - Innkaupalisti 4.-5. bekkjar  - Innkaupalisti 6.-7. bekkjar  - Innkaupalisti 8.-9. bekkjar
Lesa meira

Sumarleyfi

Skrifstofa Naustaskóla verður lokuð frá 20. júní til 2. ágúst í sumar. Ef á þarf að halda er hægt að hafa samband við skólastjóra með netfanginu agust@akureyri.is eða í síma 847-8812.  Skólasetning verður 22. ágúst.  Foreldrar nýnema munu fá tölvupóst um miðjan ágúst með boðun í viðtal á skólasetningardaginn. Gert er ráð fyrir að skólinn annist innkaup námsgagna fyrir nemendur nema hvað varðar ritföng fyrir nemendur í 4.-9. bekk.  Upplýsingar varðandi þetta verða birtar hér á heimasíðunni í byrjun ágúst.  Hafið það gott í sumar og við hlökkum til að sjá ykkur í haust! 
Lesa meira

Ársskýrsla Naustaskóla 2010-2011

Ársskýrsla skólans fyrir skólaárið 2010-2011 er nú komin á vefinn.  Í henni má finna helstu upplýsingar um fyrsta starfsár skólans en auk þess inniheldur hún gróft mat á því hvernig til tókst og nokkrar tillögur um hvernig gera má enn betur í framtíðinni.  Smellið hér til að opna ársskýrsluna..
Lesa meira