Fréttir

Merki skólans

/* /*]]>*/  Hannað hefur verið merki fyrir skólann sem unnið er út frá orðunum ”naust” og “skóli”. Heildarútliti merkisins svipar til framhluta skips sem vísar til nafns skólans en einnig til þess að í skólanum eru “allir á sama báti” og skólasamfélagið er á sameiginlegri siglingu í átt að settum markmiðum. Í merkinu má sjá penna sem hefur vísan í nám og kennslu.  Merkið er örvalaga og vísar til framtíðar, sumir sjá út úr merkinu fugl sem stefnir til himins en það er vel við hæfi þar sem við í Naustaskóla erum að “hefja okkur til flugs”. Blár er litur trausts og virðingar og hefur einnig vísan til öryggis.  Brúnn litur er jarðbundinn, hann táknar vináttu, jörð, styrk og stöðugleika. Smellið hér til að sjá nánar...
Lesa meira

Starfsmannahópurinn fullskipaður

/* /*]]>*/ Þá er ráðningum starfsmanna lokið í þær stöðuheimildir sem eru fyrir hendi næsta vetur. Eins og flestum er kunnugt var lokið við að ráða í kennarastöður við skólann fyrr í vor en nú nýverið var ráðið í ýmsar aðrar stöður við skólann, voru þá eftirtaldir ráðnir til starfa og bjóðum við þau velkomin í hópinn; Aðalheiður Reynisdóttir iðjuþjálfi Guðrún Huld Gunnarsdóttir skólaritari Gyða Björk Aradóttir stuðningsfulltrúi Harpa Hrönn Gunnarsdóttir skólaliði Harpa Mjöll Hermannsdóttir skólaliði Hrafnhildur Stefánsdóttir forstöðumaður frístundar Hugrún H. Sigurbjörnsdóttir skólaliði Ingólfur Valur Ívarsson umsjónarmaður Kolbrún Sigurðardóttir skólaliði Marcela Andrea Ceron skólaliði Sandra Mjöll Tómasdóttir skólaliði Heildaryfirlit yfir starfsmenn skólans má sjá hér
Lesa meira

Reglugerð um heimakennslu

Nú nýverið var gefin út reglugerð um heimakennslu á grunnskólastigi en skv. nýjum grunnskólalögum geta foreldrar í vissum tilfellum óskað eftir að fá að annast sjálfir kennslu barna sinna.  Reglugerðin er svohljóðandi;
Lesa meira

Hverfishátíð - opið hús

Hverfisnefnd Naustahverfis stendur fyrir hverfishátíð fimmtudaginn 11. júní nk. kl. 17:00-19:00 í Naustaborgum ofan Sómatúns.  Á dagskránni verða þrautir, leikir, andlitsmálun, hestar, grill o.fl. en auk þess verður opið hús í Naustaskóla kl. 18:30-20:00 þar sem færi gefst á að skoða húsnæðið.  Smellið hér til að sjá auglýsingu um hátíðina..
Lesa meira

Staða ráðninga

Afgreiðsla umsókna um stöður ritara og umsjónarmanns dregst lítillega en umsækjendur um þau störf eiga von á svörum fyrir helgina. Þegar niðurstaða í þeim málum liggur fyrir hefst vinna við úrvinnslu umsókna um stöður iðjuþjálfa, forstöðumanns frístundar, skólaliða og stuðningsfulltrúa en ljóst er að sú vinna tekur nokkurn tíma...
Lesa meira

Fjöldi starfsumsókna

Töluverður fjöldi umsókna berst um þau störf sem auglýst eru við skólann.  Þannig bárust 22 umsóknir um starf ritara og 19 umsóknir um starf umsjónarmanns við skólann.  Viðtöl vegna þessara starfa eru hafin og gert er ráð fyrir að niðurstöður liggi fyrir í síðasta lagi 3. júní nk.   Í lok vikunnar rennur svo út umsóknarfrestur um fleiri störf við skólann og er stefnt að því að gengið verði frá ráðningum í þau störf fyrir miðjan júní.
Lesa meira

Skóladagatal 2009-2010

Nú liggur fyrir skóladagatal fyrir næsta vetur og má nálgast það hér.  Skólastarf hefst 24. ágúst með viðtölum umsjónarkennara við nemendur og foreldra.  Boðanir í viðtölin munu berast foreldrum snemma í ágúst.
Lesa meira

"Heimasmíðuð" húsgögn

Í vetur var ákveðið að leitast við að þau húsgögn sem kæmu í skólann yrðu að verulegu leyti smíðuð hér á Akureyri, til að stuðla að atvinnusköpun í bænum.  Niðurstaðan var sú að eftir útboð var samið við SS-byggi um smíði á stærstum hluta þeirra húsgagna sem koma í skólann, þ.e. samtals rúmlega 300 borð, 115 hillur/hirslur af ýmsum gerðum og 20 "fjölnotakassa" sem er nýjung í húsgagnaflórunni í skólum hérlendis... Að auki verðum við svo með nóg af sófum, pullum, dýnum, hrúgöldum o.fl. til að leitast við að búa til sem fjölbreyttast námsumhverfi.  Nemendastólarnir koma hins vegar frá Þýskalandi og er þar um að ræða afar vandaða stóla sem komin er góð reynsla af en þeir eru þeim eiginleikum búnir að fylgja hreyfingum nemenda og liggja þar að baki miklar rannsóknir.  Hér má nálgast viðtal við ráðgjafa við hönnun þessara stóla...
Lesa meira

Styrkur úr Endurmenntunarsjóði

Naustaskóla hefur verið veittur styrkur úr Endurmenntunarsjóði grunnskóla að upphæð kr. 378.000.-   Styrkur þessi mun koma í afar góðar þarfir við undirbúning starfsmanna skólans enda er margt sem þarf að fræðast um og mikil vinna framundan við að stilla saman strengi starfsmannahópsins.  Endurmenntunarsjóður veitir samtals tæplega 23 milljónum króna til 113 verkefna þetta árið.
Lesa meira

Laus störf við Naustaskóla

Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir um störf skólaliða, stuðningsfulltrúa, iðjuþjálfa og forstöðumanns frístundar við Naustaskóla.  Umsóknarfrestur um þessi störf er til 29. maí.  Sjá nánar á umsóknavef Akureyrarbæjar http://akureyri.is/stjornkerfid/auglysingar/
Lesa meira