Fréttir

Laust starf skólaliða

Við Naustaskóla er laust til umsóknar starf skólaliða. Starf skólaliða er fjölbreytt og felur í sér gæslu og aðstoð við nemendur í starfi og leik á vegum skólans, störf í Frístund (síðdegisgæslu), við matarafgreiðslu, ræstingar o.fl. Leitað er að aðila sem: Hefur áhuga á og reynslu af að starfa með börnum og á auðvelt með samskipti við börn. Hefur til að bera góða samskiptahæfni. Getur unnið sjálfstætt og sýnt frumkvæði. Hefur áhuga á að taka þátt í mótun nýs skóla og er tilbúinn til að taka að sér fjölbreytt verkefni.
Lesa meira

Myndir frá vígsluhátíðinni

Húsnæði skólans var formlega vígt laugardaginn 28. nóvember.  Fulltrúi verktaka afhenti veglegan lykil sem gekk til bæjarstjóra, þaðan til formanns skólanefndar og loks til skólastjóra.  Nemendur léku og sungu, 7. bekkur starfrækti kaffihús og skólinn var opinn til skoðunar fyrir bæjarbúa og margir nýttu sér það.  Skólanum barst töluvert af gjöfum og góðum kveðjum sem við þökkum fyrir og gleðjumst yfir, þetta var hinn ánægjulegasti dagur.  Smellið hér til að sjá myndir frá vígsluhátíðinni..
Lesa meira

Vígsla Naustaskóla - fréttatilkynning

Laugardaginn 28. nóvember er haldið upp á byggingu fyrri áfanga Naustaskóla með formlegri vígslu húsnæðisins. Undirbúningur að byggingu grunnskóla í Naustahverfi hófst í byrjun árs 2006. Fengnir voru til samstarfs fulltrúar ýmissa hópa úr samfélaginu í hugarflugsvinnu og leitaðist vinnuhópurinn við að tengja saman í eina heild skipulag skólastarfsins, hönnun byggingar og þátttöku grenndarsamfélags í námi og starfi nemenda. Skýrsla vinnuhópsins var grundvöllur hönnunarforsagnar fyrir skólabygginguna en niðurstaða hans var var að við hönnun skólans skyldi horfa til þess að húsnæðið hentaði skólastarfi sem miðar að einstaklingsmiðuðu námi og var horft m.a til Ingunnarskóla í Reykjavík. Hugmyndafræðin felst í því að hugsa nútímalega og til framtíðar og vera óhrædd við að brjóta aldagamlar hefðir. Lögð var áhersla á að tengja skólastarfið við atvinnulífið og það sem er að gerast í samfélaginu og nýta upplýsingatækni eins og kostur er. Við hönnunina var m.a. lögð áhersla á eftirfarandi atriði:
Lesa meira

Eldvarnarvika hjá 3. bekk

Vikan 23. -27. nóvember er eldvarnarvika, þá mæta slökkvilið landsins gjarnan í heimsóknir til 3ju bekkja grunnskólanna og fræða þau um hvaðeina sem viðkemur eldvörnum. Við fengum heimsókn á þriðjudaginn sem endaði með því að slökkvibíllinn var skoðaður í krók og kring... kannski eru einhverjir upprennandi slökkviliðsmenn í hópnum.
Lesa meira

Rithöfundur í heimsókn

Gerður Kristný, rithöfundur, heimsótti okkur í vikunni og hitti nemendur í 1.-5. bekk.  Hún sagði krökkunum frá sjálfri sér og bókunum sínum, og las upp úr nýjustu bók sinni sem heitir Prinsessan á Bessastöðum. Þetta var hin skemmtilegasta uppákoma og ekki annað að sjá en krakkarnir skemmtu sér hið besta...
Lesa meira

Myndir frá skólastarfinu í nóvember

Óhætt er að segja að nemendur skólans hafa brallað margt og mikið á síðustu dögum.  Þau hafa t.d. verið dugleg við eldfjallasmíði, í dansi, í teiknun og að sjálfsögðu í matartímum. Stórglæsilegir krakkar alveg hreint og er því tilvalið að láta nokkrar myndir fylgja. Hér er hægt að sjá myndir af 6.-7. bekk í danstíma oghér eru ýmsar myndir frá skólastarfinu.
Lesa meira

Vígsluhátíð

Laugardaginn 28. nóvember verður húsnæði skólans formlega vígt og afhent til notkunar.  Af því tilefni verður opið hús í skólanum milli 14 og 17 þar sem bæjarbúum gefst kostur á að skoða húsnæðið og kynna sér lítillega það sem hér fer fram.  7. bekkur með fulltingi foreldra mun starfrækja kaffihús og selja drykki og vöfflur á 500 kr.  Nemendur 4.-5. bekkja sýna stuttan leikþátt kl. 15 og skólastjóri verður með stutta kynningu á skólastarfinu kl. 14:30 og 16:00.   Allir velkomnir!
Lesa meira

Dagur íslenskrar tungu

Í tilefni af degi íslenskrar tungu kom menntamálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, í stutta heimsókn til okkar.  Hún fylgdist m.a. með þegar nemendur í 7. bekk hófu undirbúning að Stóru upplestrarkeppninni með því að lesa fyrir 1. bekk.  Svo vel vildi til að fyrir valinu varð Þula eftir Theódóru Thoroddsen sem er einmitt langamma Katrínar.  Myndir frá upplestrinum má sjá hér.
Lesa meira

Plánetur, fágæti og furðuverk

Það var nóg um að vera hjá nemendum 4.-5. bekkjar á föstudaginn, þá héldu þau hátíð vegna loka á þemaverkefni um pláneturnar.  Þau buðu foreldrum í heimsókn og sýndu þeim afrakstur vinnunnar, fóru í spurningakeppni o.fl.  Í leiðinni kynnti Ingibjörg Auðunsdóttir fyrir foreldrum verkefnið "Fágæti og furðuverk".  Það er verkefni sem ætlað er til að hvetja nemendur til lestrar og er einmitt að hefjast hjá nemendum 4.-5. bekkja.  Smellið hér til að sjá myndir frá plánetuhátíðinni, en hér til að sjá upplýsingar um verkefnið Fágæti og furðuverk.
Lesa meira

Samkeppni um gerð jafningjafræðsluefnis

SAFT, ungmennaráð SAFT, Heimili og skóli og Nýherji efna til samkeppni meðal grunn- og framhaldsskólanemenda um gerð jafningjafræðsluefnis sem stuðlar að jákvæðri og öruggri netnotkun. Innsent efni má vera í formi myndbanda, kennslueininga, veggspjalda, handrita af leiknu efni, leikir o.s.frv., en miðað er við að það sé nýtilegt við jafningjafræðslu í grunnskólum landsins. Tekið er við efni bæði frá einstaklingum og bekkjum. Efni þarf að skila inn fyrir 22. janúar 2010 en vinningshafar verða kynntir á alþjóðlega netöryggisdaginn 9. febrúar 2010.
Lesa meira