Fréttir

Stjörnuskoðun

Nú þegar dimmt er orðið á kvöldin er alveg upplagt að kíkja aðeins til himins í myrkrinu og skoða stjörnurnar, það er bæði fróðlegt og skemmtilegt..  Þá er nauðsynlegt að hafa kort til hliðsjónar til að glöggva sig á hvað stjörnurnar heita o.fl.  Með því að smella á tenglana hér á eftir má nálgast kort fyrir stjörnuhiminn októbermánaðar og er hægt að velja um kort til útprentunar eða til að skoða á síma eða spjaldtölvu.  Við minnum svo á Stjörnufræðivefinn, www.stjornufraedi.is en þar má jafnan finna stjörnukort og ýmsan skemmtilegan fróðleik. Smellið hér til að opna stjörnukort til útprentunar. Smellið hér til að opna stjörnukort til að skoða í snjalltæki. 
Lesa meira

Vísindasirkus frá Noregi

Á miðvikudaginn kom norskur vísindasirkus í heimsókn. Þeir félagar Magne og Ivar sýndu nemendum margar flottar og skemmtilegar tilraunir sem voru töfrum líkastar. Börnin voru mjög spennt og supu stundum hveljur, svo spennandi var þetta allt saman. Eftir sýninguna fengu nemendur í 4.-7. bekk að prófa að gera nokkrar tilraunir eins og að búa til bíla úr pappa, plaströrum og plasthringjum, eldflaugar og fleira skemmtilegt. Hér er hægt að sjá myndir frá þessum skemmtilega viðburði.
Lesa meira

5. og 6. bekkur í Krossanesborgum

Meðan að nemendur í 4. og 7. bekk þreyttu samræmd prófum á dögunum fengu félagar þeirra í 5. og 6. bekk alveg sérstaka dagskrá sem innifól m.a. ferð í Krossanesborgir í fylgd íþróttakennara.  Hér má sjá nokkrar myndir...  
Lesa meira

Októberfréttabréfið komið út..!!

Fréttabréf októbermánaðar er nú komið út og má nálgast það hér..  
Lesa meira

Töframaðurinn Einar Mikael kom í heimsókn

Töframaðurinn Einar Mikael kom í heimsókn í skólann í gær og sýndi krökkunum hin ýmsu töfrabrögð. Hér eru nokkrar myndir frá sýningunni.
Lesa meira

Nemendaráð ákveður "lit skólans"

Nú hefur nemendaráð ákveðið að "litur skólans" til framtíðar verði ljósblár.  10. bekkur hefur nú í hyggju að fara að selja boli og þá þurfti að ákveða lit þannig að sem flestir geti keypt sér bol í lit skólans t.d. til að mæta í þegar íþróttakeppnir eiga sér stað o.s.frv.  Litir hafa nokkuð verið á reiki milli skóla og milli keppna, við höfum hingað til notað bæði appelsínugulan og fjólubláan en aðrir skólar nota einnig þá liti og var því ákveðið að finna nýjan lit.  Eftir nokkrar umræður komst nemendaráð að þeirri niðurstöðu að ljósblár yrði litur Naustaskóla, enda er sá litur ekki í notkun annars staðar, bæði kyn virðast fella sig vel við hann og hann fer vel með merki skólans.
Lesa meira

Myndir frá útikennslu í 2.-3. bekk

Einn góðviðrisdaginn í haust brugðu nemendur í 2.-3. bekk sér í Naustaborgir og notuðu blíðviðrið til að spóka sig og læra utandyra.  Í þetta skiptið smelltu þau líka af nokkrum stórskemmtilegum myndum sem má sjá með því að smella hér..  
Lesa meira

Fréttir frá Foreldrafélaginu

Aðalfundur Foreldrafélagsins var haldinn þann 17. september sl. og sem fyrr vorum við afar stolt af góðri þátttöku foreldra á fundinum, en um 100 foreldrar mættu á fundinn.  Flestir stjórnarmanna gáfu kost á sér til áframhaldandi stjórnarstarfa og er stjórnin nú þannig skipuð: Vaka Óttarsdóttir Áshildur Hlín Valtýsdóttir Erla Rán Kjartansdóttir Sigríður Ingólfsdóttir Margrét Auður Sigurbjörnsdóttir Fanney Pétursdóttir Sólveig Styrmisdóttir Martha Lilja Marthensdóttir Olsen Sigrún Sigurðardóttir Valgý Arna Eiríksdóttir Claudia Lobindzus Hér má nálgast fundargerð aðalfundarins...
Lesa meira

Hjóladagur fjölskyldunnar 20. september 2014

Ágætu foreldrar. Laugardaginn 20 september verður safnast saman við Naustaskóla kl. 12 og hjólað kl.12.30 að nýjum göngu- og hjólastíg við Drottningarbraut. Tilvalið tækifæri fyrir fjölskylduna að hjóla saman og enda svo í grillveislu á Ráðhústorgi. Hjólalest fer frá Naustaskóla og það væri gaman að sjá sem flesta úr okkar hverfi. Hjólreiðafélag Akureyrar leiðir hjólalestir frá grunnskólum bæjarins að nýjum göngu- og hjólreiðastíg við Drottningarbraut. kl. 13:00 Nýr göngu- og hjólreiðastígur formlega vígður við gatnamót Miðhúsabrautar og Drottningarbrautar. Þaðan hjólað saman að Ráðhústorgi. kl. 13:30 Dagskrá á Ráðhústorgi. Grillaðar pylsur og drykkir í boði Kynning á vistvænum ökutækjum og rafhjólum Börnin fá að skreyta göturnar Myndataka fyrir þá sem vilja, í bílstjórasæti strætó Slökkviliðið mætir á svæðið Svo er bara að klæða sig eftir veðri og að sjálfsögðu gildir; ENGINN HJÁLMUR – EKKERT HJÓL Góða skemmtun
Lesa meira

Aðalfundur Foreldrafélagsins

Aðalfundur Foreldrafélags Naustaskóla verður haldinn í sal skólans kl. 20:00 miðvikudagskvöldið 17. september. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf, stutt erindi um lestur, lestrarnám og þátt heimila í því, og að lokum notalegt kaffispjall :) Ætlast er til að a.m.k. einn fulltrúi frá hverju heimili mæti á fundinn! Stjórn Foreldrafélagsins
Lesa meira